Astral Projection(out of body experience) Ég vill endilega koma af stað umræðu um þetta fyrirbæri Astral projection, semsagt fá reynslu sögur og svoleiðis.
Ég er nýlega búinn að fá áhuga fyrir þessu og hef lent í tveimur reynslum af þessu tagi.
Og langar að vita hvort að ég sé einn um þetta á landinu sem þorir að tala um þetta. Ef að það koma einhverjar sögur þá hendi ég mínum reynslum hingað inn.
Þetta er bara til að gá hvort að það sé ekki örugglega áhugi fyrir þessu og að fólk hafi einhverja þekkingu á þessu, þannig að fólk haldi ekki að ég sé brjálaður og sé spítalamatur.
En fyrir þá sem eru áhugasamir þá er þetta mjög breytilegt á milli manneskja hvernig það upplifir þetta. en svona í heildina þá er það aðalega þannig að fólk er annað hvort nýfarið að sofa eða nývaknað og liggur uppí rúmmi eða situr í stól, þegar það heyrir hljóð sem gæti líkst hljóði í fossi(það er samt ekki 100% að fólk heyri þetta hljóð áður en að það gerist, samt frekar algengt) og með því fylgir alger eða nokkur lömun í líkamanum, og í kjölfarið af því getur verið að fólk finni fyrir víbringi í öllum líkamanum eða einhverjum líkamshlutum, og svo byrjar það að svífa upp úr líkamanum og svífur upp að loftinu og svo kemur fyrir að það vaggar þar uppi, eða jafnvel kastast til og frá í loftinu og svífur svo rólega niður á gólf og þá getur það séð sjálfan sig liggjandi í rúmminu en það getur farið sínar ferðir óhindrað og gert hvað sem því líkar(svo sem að fljúga um fjöllin blá eða bara skreppa til tunglsins… það eru engin takmörkm fyrir getu manns á þessu andlega tilverustigi) ég veit að þetta hljómar frekar ótrúverðugt, en ef að þið trúið mér ekki þá getiði fundið heilan helling af reynslusögum og leiðum til að auðvelda fólki til að yfirgefa holdlega líkamann á vefinum um þetta efni t.d á http://astralsociety.com/as/cms/Articles/index.php?CID=6 og www.jonasridgeway.com


En ef að þið hafið upplifað eitthver af þessu einkennum sem ég lýsti hér fyrir ofan þá endilega svarið þessari grein, og líka ef þið hafið lent í því að opna augun þar sem þið liggið uppí rúmmi eða einhversstaðar og getið aðeins hreyft augun en ekkert annað af líkamanum, sem hefur mjög líklega vakið mikla hræðslu, það er hluti af því að fara útúr líkamanum í flestum tilfellum, semsagt eiginilega byrjunarstigið á því.
Endilega látið í ykkur heyra…
It´s impossible to be unhappy in a poncho