Mig dreymir oft sama draumin, þar er ég að svífa, ég geri mig alveg máttlausa og fer að fljóta…. ég er alltaf með fólki, en ég er sú eina sem get þetta… Veit einhver hvort þetta þýði eitthvað eða hvort þetta sé bara algjört bull?
Svo dreymir mig stundum að ég sé í fjölskylduboði þar sem báðar fjölskyldurnar eru í líka þeir sem dánir eru, það segir enginn neitt nema ég, ég er alltaf að reyna að fá alla til að tala. En það er eins og munnarnir á þeim séu saumaðir aftur!! Svo dreymir mig líka oft að ég sé að myrða fólk, og svo glotti ég bara og það sé voða stuð!! Þetta er svo skrýtið!! ekkert gaman heldur.
Og svo í nótt dreymdi mig draum sem mig hefur ekki dreymt áður. Ég treysti ekki fólki almennt, en nokkrum, og í þessum draumi var fólk sem ég treysti að gera slæma hluti við mig og segja slæma hluti um mig og mér leið svo illa að ég stökk niður af húsi… og meðan ég var að detta niður þá voru þau öll að hlæja að mér og segja að ég væri aumingji!! þetta var ekki góður draumur!! ég hrökk upp og gat ekki sofnað aftur!! ég vona að einhver hafi einhverjar útskýringar fyrir mig!
Draumvond
Just ask yourself: WWCD!