http://www.remotehypnosis.com/
http://www.warpmymind.com/

Ég var að vafra um netið eins og hver annar plebbi um daginn…
Nei rekst ég ekki á þessa svaðilfarslegu síður um dáleiðslu, ég hef aldrei kynnt mér dáleiðslu neitt sérstaklega en eftir að hafa lesið áhrifin sem þetta hefur á mann gat ég ekki orðið annað en forvitinn!

http://www.remotehypnosis.com/ á þessari síðu er fullt af dáleiðslu til að hjálpa þér að ganga betur í lífinu, fá betra minni, ljósmyndaminni, betri einbeitingu og margt margt fleira! Getur ekki verið til annars en góðs…

Hin síðan þarna warpmymind er með stór skilaboð í byrjun 21 árs og eldri þannig að það gerir mann enn þá forvitnari og komst ég þá að því að fólk notar dáleiðslu við hinar “ýmsu” athafnir en margt þarna inná er líka hagnýtt. T.d. er ein dáleiðsla sem lætur þig pissa á þig í hvert skipti sem eitthvað orð heyrist…

Mig langar ótrúlega að prófa dáleiðsluna sjálfur mig langar bara að kynna mér þetta betur fyrst, væri hagstætt að fá ljósmyndaminni eða ofurgóða sjón…

Eftir að hafa lesið um þetta nánar komst ég einnig að því að maður þarf að vera alveg afslappaður og þetta virkar kannski ekkert í fyrsta skiptið, sumar dáleiðslanna þarf að hlusta á á hverjum degi svo að þær hafi einhver áhrif.

Síðan inná warpmymind síðunni er fullt af svona curse files til að leggja álög á fólk og sjálfur held ég því fram að galdramenn miðalda og töfralæknar hafi notað dáleiðslu í stað einhverra efna eða þess háttar og orðið þannig máttugir…

Mæli með að þið prófið og segið frá reynslu ykkar hérna