Ég fór í heilun í gær og það var frekar skrítið. Ég lagðist upp á hátt rúm með teppi yfir mér ofan á mér og hún (konan sem var að gera þetta) sagði mér bara að slaka á, vera ekkert stressuð. Hún byrjaði á því að taka um iljarnar og kálfana, lærið og svoleiðis, svo fór hún með hendurnar undir bakið og ýtti, fljótlega fór svo straumur í gegnum hægri hendina og bakið, svo fæturna og bakið og að lokum allan líkaman. Ég reyndi að halda augunum opnum lengi, vilti ekki loka þeim. Þá fór ég að sjá eins og grænan eldhnött fara hring eftir hring (réttsælis) og fljótlega áttaði ég mig á að þetta var ekki svona eins og þegar maður er búin að horfa í ljós eða þannig. hann var í smá tíma, svo komu græn ský sem fóru “upp” og mér fannst eins og þau væru að fara í burtu (þau fóru svona eins og textinn, hver var að leika í kvikmyndinni og svona) þau voru heillengi, svo komu nokkrir grænir fuglar, en samt ekki alveg eins og fuglar, en með vængi, það var eins og þeir væru að koma. Svo hætti þetta í smá stund en svo kom fjólublár litur sem stundum fylti alveg upp í það sem ég sá en stundum sá maður smá í gegn. Svo færði hún sig að höfðinu, setti hendina undir hálsinn og ýtti og lyfti upp, svo færði hún sig yfir á gagnaugað. Ég heyrði svo hljóð, eins og bíll að skrensa (heyrði vel að það var ekki úti) svo heyrðist “Haallóóó” (en bara einu sinni) svo lokaði ég loksins augunum og þá heyrði ég einhvern takt “búmm barúmm-búmm barúmm” og fór að hugsa um ballið sem ég hafði verið á kvöldið áður (og svo hlýt ég að hafa sofnað).
Síðan opnaði ég augun og sá hendurnar hennar yfir mér og svo fóru þær til baka og ég lokaði aftur augunum, svo sagði hún við mig að núna mætti ég koma þaðan sem ég var og ég opnaði augun og hún sagði mér að ég hefði sofnað. Það tók mig smá stund að standa á fætur og svo sagði hún mér þegar ég var að fara að fá mér vatn að drekka.

Mig langaði bara að segja frá þessu og ef einhver vissi hvers vegna ég sá þessa liti og heyrði þetta að segja mér það.

(skrifaði þetta í flýti, sorry ef það er erfitt að lesa og skilja)
=)