Eru draugar til? Ég er ekki viss en ég held það. Ég bý sko í frekar gömlu húsi í Hafnarfirðinum og þegar ég er ein heima finn ég fyrir einhverju. Eins og einu sinni var ég ein heima um hábjartan dag og ég missti eitthvað (ég man ekki hvað) undir sófann. Og þegar ég beigði mig niður til að ná í þetta þá hreyfðist það í áttina til mín og að lokum fór það undan sófanum. Þetta er ekki lygi og ég bið ykkur um að trúa mér. Ég hef oft séð lítinn strák labba upp tröppurnar heima hjá mér en þegar ég lít betur er ekkert þar! Ef þið hafið eitthvað um þetta að segja gefið þá álit ykkar á þessari grein.
Með kveðju
Coolcat