Er einhver sem kann að ráða drauma?? Það er nefninlega þannig með mig að mig dreymir svo oft sama drauminn og ég vakna alltaf á sama stað í svitabaði! Getur einhver hjálpað mér? En svona er allavegana draumurinn.

Ég vinn hjá ríkissjónvarpinu á svona sjónvarpsbíl. Og Ragna sem er bekkjarsystir mín er líka að vinna þarna. Við keyrum fram hjá Hveragerði og þegar við erum næstum komnar til Selfoss þá stoppum við fyrir framan fjall. Og við förum út og við erum með snjóflóðatæki. En allt í einu kemur Gunnar sem er bekkjarbróðir minn útúr bílnum með risastórann gaffal! Og svo allt í einu kemur snjóflóð. Við þrjú reynum að komast að bílnum en Gunnar missir gaffalinn. Og ég er allt í einu orðin seinust. Ég reyni að kalla á þau en þau virðast ekki heyra. Og þá heyri ég þungt fótatak og finn risastóra hönd grípa um mig og mér er lyft upp. Tröllið-því að þetta er tröll- tekur mig með sér inn í fjallið og lætur mig í risastórann pott. Og svo fer það og nær í gaffalinn hans Gunnars og byrjar að stinga mig….

Og þarna vakna ég alltaf í svitabaði. Ef þú getur hjálpað mér svaraðu þá þessari grein eða sendu mér póst. ( coolcat@hugi.is )
Virðingarfyllst
Coolcat