Það gerðist fyrir mig í nótt hlutur sem hefur verið að gerast áður fyrir mig.Ég var hálf vakandi og hálf sofandi og mér leið eins og einhver væri að reyna að komast inní líkama minn eða þá að sálin hjá mér væri að reyna að brjótast út.Þetta er ekkert grín,ég hef oft fengið svona áður og er þetta ekki þægilegasta tilfinning í heimi sko.Eftir þetta atvik í nótt virkilega leið mér eins og slæmar sálir væru að reyna að komast í mig.Stundum þegar svona er að gerast næ ég að stynja uppúr svefni svona smá (hróp á hjálp) og ég heyri það sjálfur að ég er að stynja þótt ég sé sofandi.Mér finnst þetta ótrúlegt að geta heyrt í sér sjálfur þegar maður er sofandi og gefur frá sér einhver hljóð en samt segi ég ekki að mér hafi fundist þetta skemmt í nótt og þurfti ég dágóðann tíma til að sofna aftur.En allavega ef að einhver annar hefur lent í þessu sama og ég þá endilega látið mig vita því að ég ætla að vona að ég sé mennskur eins og allir aðrir.