Fyrir tveim vikum síðan var ég og nokkrir vinir mínir að spila LAN (Tengdum allar tölvurnar saman og spiluðum) og þá gerðist sá furðulegi atburður að ljósið slökknaði,það gerðist nokkrum mínutum eftir að tveir vinir mínir voru nýkomnir úr Andaglasi,einn vinur minn sem var þarna um þetta kvöld er skyggn og um leið og hinir tveir vinir mínir komu inn þá hætti hann strax að blaðra (Hann er “Þekktur” fyrir að blaðra) og sagði ekkert fyrr en Ljósið Slökknaði!!!!hann sagði að hver hafi slökkt ljósið?En náttulega slökkti enginn ljósið,Við héldum að þetta væri einn vinur okkar og við fórum að kalla fram að þetta væri ekkert fyndið og hann væri ófrumlegur,En enginn svaraði,þá sagði skyggni vinur minn að þetta væri VONDUR andi að reyna að komast til okkar,Við spurðum hann hvernig hann vissi það þá sagði hann okkur að ef við sjáum eitthvað blátt eða eitthvað tákn þá þýðir það að “Fylgjurnar” okkar eru að stoppa hann,Ég er alveg skíthræddur af því að þegar þessi vinur minn kemur að chilla með mér þá segir hann ekki mikið og er mjög hljóður um sig,eins og að eitthvað sé þarna!!!!!!

Ég er ekki að DJÓKA,ég er ekki Paranoia af því að ef ég væri það þá væru allir vinir mínir það líka!! og þar sem ég á heima í bílskúr þá gæti enginn komist inn nema með því að geta labbað í gegnum hurðina eða veggina,það getur enginn manneskja gert,og það var enginn að fela sig bakvið hurðina eða eitthvað svoleiðis af því að systir mín kom inn og við sögðum henni að kíkja hvort einn vinur okkar væri bakvið klósettshurðina,en það var enginn!!!!!