Sæl, þetta er svosem ekkert merkilegt en mig langaði samt að deila þessu, ég nefnilega lenti í soldið skrýtnu atviki í gærkvöldi.
Þannig er að alveg frá því að ég var lítill þá hef ég alltaf fundið rosalega sterka svona “nærveru” frá fólki í kringum mig sem ég sé ekki.
Stundum er hún slæm en yfirleitt er hún góð, ég t.d. vann í elsta húsi Reykjavíkur einu sinni (gamla fógetanum) og aldrei hef ég komið inná stað sem mér leið jafn vel á.
Allavega, þetta er ekki það sem ég ætlaði að tala um. Þannig er að í gær var ég að flytja í nýtt hús, þetta er 101 árs gamalt hús á besta stað í miðbænum (geggjað).
Þetta er svona eitt af þessum gömlu virðulegu húsum þar sem maður beinlínis finnur sögu hússins renna um sig um leið og maður dregur andann. Eldgamlar ljósakrónur, brattir mjóir stigar sem brakar í við hvert skref o.s.frv. Og ég fann það strax hvað mér leið vel þarna inni og að þarna hafði verið gott fólk(veit það reyndar fyrir víst þar sem það voru forfeður mínir sem bjuggu þarna fyrir löngu síðan).
Ég fann strax fyrir mjög sterkri svona “nærveru” þarna inni, það vita örugglega flestir hvað ég er að tala um, og hún var þægileg, fannst eiginlega eins og ég væri vafinn í mjúkt teppi þegar ég settist niður. Svona var þetta allt kvöldið, þangað til ég fór að sofa.
Þegar ég var svo að festa svefn, þá fannst mér skyndilega eins og einhver kæmi upp rúmstokkinn minn (svona eins og hann hefði verið undir rúminu eða eitthvað) kæmi alveg uppað andlitinu mínu og sagði nafnið mitt, en um leið og ég opnaði augun þá sá ég ekki neitt. Ég hugsaði að kannski hefði mig bara verið að dreyma og ákvað að reyna sofna aftur, en um leið og ég ætlaði að festa svefn þá gerðist það nákvæmlega sama aftur.
Mér fannst þetta alveg rosalega óþægilegt þannig ég fór og sótti hundinn minn og bauð honum gistingu inni hjá mér :)

Þegar þetta svo gerðist í þriðja skiptið, þá opnaði ég augun og sá að hundurinn stóð úti á miðju gólfi, með galopinn augun, lafandi tungu og dillandi skottinu og virtist vera að horfa upp á einhvern sem stóð við rúmið mitt en ég sá ekki, svo kom hann til mín og sleikti mig í framan, eins og til að segja mér að þetta væri allt í lagi, lagðist svo niður og fór að sofa.
Ég sofnaði svo stuttu seinna og svaf mjög vel það sem eftir var nætur.

Ég veit ekki alveg afhverju ég er að skrifa þetta, langaði bara að segja frá þessu