Sagan um puttalingin er líka til á íslandi og það sem er skrítnasta af þessu öllu að nátengdur ættingi minn lenti í þessu.

Þetta gerist í kringum 72 að afi minn heitinn er að keyra frá stokkseyri og á selfoss. Það var ekki búið að malbika leiðina, svo það tók stundum smá tíma að keyra þetta! Annars er hann að keyra austur á selfoss og hittir unga dömu sem stendur rétt við veginn, hann stoppar fyrir henni og býður henni inn. Hann keyrir með henni og er að forvitnast hvað hún er að gera hér, því það er ekki algengt að sjá ungar dömur vera á ferðinni labbandi. Hún svaraði engu og horfði víst með tómum augum út, afi minn hugsaði ekki meir um þetta og heldur bara áfram að keyra! Hann lítur á hana reglulega og vorkennir henni og tekur eftir því að hún er ekkert klædd eins og unga fólkið. Síðan þegar hann er komin langleiðina á selfoss, þá heyrir hann hóst aftur í og hann lítur, þá er hún farin! Hann skildi ekkert í þessu og sagði engum frá þessu í langan tíma. Hann lýsti henni sem ungri manneskju líklega um tvítugt og hefði verið falleg, hann sagði að lyktin eða ilmurinn af henni hafi verið mjög sérstök og ljúf og hann hugsaði oft um hana! Amma mín og börn hennar sögðu að hann hafi líklegast annaðhvort tekið upp látna manneskju eða unga huldukonu sem væri að fá sér far..:)

Ég hef eina aðra sögu að segja og það tengist systur minni!
Málið var það að eitt kvöld að hún var fárveik og með óráð. Ég og móðir mín og frændi vorum inn í stofu að horfa á forrest gump, mamma hafði keypt handa systur minni helium blöðru daginn áður og hún var í loftinu inn í stofu! Í okkar rólegustu stundu fer blaðran allt í einu að hreyfast, við skiljum ekkert í þessu og sérstaklega að spottin á blöðrunni eins og hann væri dreginn.
Við horfum á þetta og síðan allt í einu er hann að fara inn í gang í áttina að herbergi systur minnar, við urðum dálitið smeyk og skildum ekki í þessu! Þegar blaðran ætlar að fara inn í herbegi, þá stoppar hún og er þar í smá stund, síðan snýr hún við og að áttini að forstofuni. Mamma biður mig að opna hurðina og ég geri það, síðan heldur blaðran áfram og fer út og upp í loft! Þetta var rosalega sérstök stund og við tölum varla um þetta heima, það var alveg eins og einhver væri að labba með blöðruna og reyna að? Ég veit ekki meir..
Þetta sem gerðist er 100% satt og ég hef frænda minn og móður til að staðfesta það.