Halló, ég er að vonast til þess að einhver þarna geti hjálpað mér að ráða eftirfarandi drauma. Það er nefnilega þannig að síðustu þrjár vikur hefur mig dreymt sex drauma sem allir tengjast að ég held.

Fyrsti draumurinn var þannig að mig dreymdi að ég væri ólétt, allan tíman var besta og elsta vinkona mín hjá mér og leiðbeindi mér alveg rosavel því hún hafði mikla reynslu af því að vera ólétt. Við höfum hvorug verið ólétt nokkurn tíman.
Næst dreymdi mig sömu vinkonu en núna var hún rosalega leiðinleg við mig, án þess að ég hafi gert nokkuð. Hún var bara að reyna að vera leiðinleg. Það gerðist ekkert í draumnum nema það að hún var leiðinleg við mig.
Í þriðja draumnum var hún líka og hún var bara hún sjálf, ekkert gerðist í dramnum hún var bara þarna.
Í fjórða draumnum var ég líka ólétt. Ég var með annari vinkonu minni sem er næst besta vinkona mín. Við vorum að keyra í bílnum mínum og földum hann svo í skógi á umferðareyju. Eftir það fórum við í verslunarmiðstöð og hittum pabba minn sem gaf mér hvíta kanínu sem kostaði 300 krónur og var svo lítil að hún passaði í vettlinginn minn. Það var fullt af fólki þarna að kaupa kanínur, svona þrjár fjórar í einu og þær voru allar hvítar.
Í fimmta draumnum dreymdi mig þessa kanínu aftur, hún var þó orðin stærri, ég man þennan draum ekki mjög skýrt en kanínan veitti mér mjög mikla öryggistilfinningu.
Í sjötta draumnum var ég líka ólétt. Kærastinn minn var með mér og alveg rosalega góður við mig. Pabbi hans var þarna líka og hann leit út eins og pabbi besta vinar hans en þetta var samt pabbi hans. Hann sagði honum hvað ég væri góð stelpa og að ég elskaði hann mikið og að hann ætti að halda í mig.

Þá er það búið. Það sem mér finnst tengja draumana er það fyrst og fremst að ég er ólétt í þremur draumum, besta vinkona mín er í þremur draumum, kanína í tveimur og pabbar í tveimur.
Ég hef það á tilfinningunni að það að ég sé ólétt í draumunum er það að ég sé kannski að bíða eftir einhverju samt veit ég það ekki. Ég hef í raun og veru enga hugmynd um það hvað þessir draumar gætu þýtt þannig að ég spyr ykkur. Vonandi getur einhver hjálpað mér

Kær kveðja Ukyo
If you want to make an apple pie from scratch, you must first create the universe.