Mig persónulega langar til þess að trúa af öllu mínu hjarta á það að miðlar séu actually að gera þetta allt í allvörunni, þ.e.a.s að andar komi virkilega í gegnum þá (eða hvað sem gerist,er enginn specialist), en maður getur í rauninni ekki af því gert að pæla í því hvort þetta sé allt ein stór leiksýning.
Þetta er eins og að trúa á guð, maður veltir því fyrir sér hvort e-h sé satt af því sem stendur í biblíunni en getur ekki af því gert að segja með sér að þetta geti nú eiginlega ekkert verið satt.


Ég hef farið til miðils sem er karlkyns og sumar upplýsingarnar vpru ótrúlega nákvæmar. Einn galli er þó á málinu því ég bý í tiltörulega litlu samfélagi og því auðvelt að vita e-h um e-hvern.
Eitt fannst mér hins vegar frekar skrýtið og það var það, að það voru eintómir karlar sem komust í “gegn” fyrir utan eitt skiptið, þá kom kona og hún var mállaus…hentugt??
Þessi miðill er þekktur á landsvísu þannig að ég er ekki að tala um einhvern amatör….
Hvernig væri það að fá einhverjar vísindalegar skýringar á því hvað miðlar gera????????


Bara að pæla :Þ