Það var þannig eitt kvöldið núna í vikuni að mér leiddist ekkert smá og ákvað að fara á netið… Það kom einhver manneskja að tala við mig, og við vorum búin að spjalla soldið lengi þegar hun segir alltíeinu “HVÍTT HÚS” sem ég var náttla ekki að skilja, og spurði hana hvað hun væri að meina! Þá spurði hún mig hvaða manneskja VAR altaf í peysufötum.

Ég hafði ekki hugmynd um hvað hun var að tala og sagði bara að ganni við hana “segðu mér meira” og þá sagði hun…

“það er hvítt hús og kona í peysufötum að hella uppá kaffi, hun setur export í kaffið. Hún er dökkhærð en ég sé ekki framan í hana. Hún er voða blíð og hun vill ekki að þú sért með pinann í tunguni, hún VILL að þú sért DAMA”

Ég varð ekkert smá fríked out ég hélt að hun væri bara að bulla með þetta, í fyrstu en svo varð ég bara geggjað scared!

Allavega ég spurði hana hvort hun vissi hvað hút héti… ??? Hún svaraði bara “ég veit ekki en stafurinn G er sterkur.”

Ég skipti bara um umræðu efni og fór að tala um annað og hætti að pæla í þessu. Svo kvaddi ég hana bara og fór að sofa.
Daginn eftir hryngdi ég í ömmu mína og spurði hana af ganni “hver var það sem var altaf í peysufötum???” Og hún sagði mér að langamma mín hafði oft verið í peysufötum en ég var þegar búin að pæla í hvort þetta hafði getað verið hún, en hennar nafn byrjaði ekki á G.

Svo kom í ljós að langlang amma mín hét Guðrún og hún var líka altaf í peysufötum.

Ég varð alveg orðlaus… Ég misti hálfpartinn andann og skildi ekki upp né niður í neinu…en fór samt altíeinu að trúa þessu sem þessi manneskja sagði mér. Ég hélt að þessi manneskja væri bara að bulla í mér einsog mart annað fólk gerir á netinu en þetta passaði allt þegar upp var staðið…

Svo var líka annað sem var svo skrýtið það var einsog þessi manneskja vissi allt um mig sem ENGINN veit.

Hvað finnst ykkur um þetta, ég væri alveg til í að fá að heyra hvað ykkur finnst, hvort þetta sé bull eða ekki. Líklega er þetta algjör hrein steypa einsog mart er á þessu blessaða neti. Kanski bara tilviljun??? Eða ýmyndun???

Mér finst bara svo ólíklegt að manneskja viti allt um mig og finni svona hluti… HLUTI SEM ENGINN VEIT og ég hef ekki sagt sálu :S

Takk fyrir :D kv brosmild
“Life is short and so am I”