Er einhver sem getur frætt mig um þessi fyrirbæri!ÉG er í bænahring og hugleiðsluhring og er orðin hálf rög,því orkan er svo sterk að einn í hringnum fór að ég held í hálftrans.Við erum öll byrjendur og vitum ekki hvað á að gera t,d þegar fólk er lengi að koma til baka.Við erum ekki búinn að vera lengi og margt hefur samt skeð.Við erum líka búinn að vera með tilraunir á eftir eins og með hlutskyggni.Fólk hefur verið yfirskyggt og fundið ýmsa hluti.Ég vill bara gera rétt og ekki gera neitt sem einstaklingurinn vill ekki .Því þegar þetta með transinn var ,veit ég að einstaklingurinn sem átti í hlut leið mjög illa og með naumindum kom til baka.ER þetta hættulegt?er eithvað sem við gerum vitlaust?En ég vil taka það fram að fólkið í hringnum er mjög næmt og tveir með skyggnigáfu en samt allir mjög fáfróðir. Nema við vitum að bæninn ,vernd og jarðtenging skipta miklu máli.Vonandi getur einhver frætt mig? takk april