Hvað er Lusifer? Lusifer er nafn sem er bannað af nafnanefnd… Afhverju? Hvað er að því að heita Lusifer? Það eru engir englar til þetta eru bara sögur sem fólk býr til að gera ömurlega tilveru sína aðeins bærilegri. Hvað er Guð? Guð er það tákn sem við notum til að mæla þjáningu okkar. Tilveran sem við búum í er of mótuð okkur er sagt að það séu til Englar og Guð í barnæsku og við erum forrituð af samfélaginu. En ég hef lært að sjá í gegnum allar þessar táknmyndir þær eru óþarfar. Ég sé engan mun á Krossi og Kók dós öll þessi tákn þýða það sama. Það eina sem skiptir máli er sjálfið og hvernig sjálfið skynjar veruleikan. Hvernig vitum við að það sem við skynjum sé satt og gott? Við vitum það ekki, við lifum í blekkingu og okkur er sagt hvernig við eigum að hugsa og vera. Það er fullt af kjaftæði í kringum mann og maður verður að geta litið í gegnum allt þetta kjaftæði og sjá það sem virkilega skiptir máli og það er maður sjálfur. Hver er maður? Vill ég lifa fyrir einhverja táknmynd eða vill ég lifa fyrir sjálfan mig. Þegar litið er grunnuppbygginguna þá sér maður að það er ekkert af þessari vitleysu sem skiptir máli. Lífið er of stutt til í að vera að eyða því í hugsanir um Guð eða Ljósberan. Frekar væri gott ráð að fara í Jóga eða fá sér pulsu og dansa kóngulóa dansinn…