Mig langar að upplýsa fólk aðeins um hve megnugt sálarrannsóknarfélagið er.

Það fór einn ónefndur einstaklingur að mínum ráðum og fór uppí sálarrannsóknarfélag.
Hann hafði farið í andaglas og sagði mér að hann hefði hleypt andanum út og hann var logandi hræddur.
Svar þeirra uppí sálarrannsóknarfélagi var á þá leið að þetta væri bara sjokk og það væri enginn andi. Þetta hefði bara verið rafmagn í puttunum hjá þeim. Þeir eru þá væntanlega að tala um orkuna, þarf stundum að einfalda orðalagið aðeins.

Stundum geta verið einföld svör við hlutunum en ég reyni að staðhæfa ekki neitt sem ég veit ekki sjálfur um. Frekar bendi ég á þá sem vita eitthvað um hlutina.
Ef eitthvað er að valda ykkur ótta eins og draugagangur, andar og þvíumlíkt og viljið fá svör þá mæli ég með að þið gerið það sama og strákurinn sem ég sagði hér frá og talið við þá uppí sálarrannsóknarfélagi.
Stundum er þetta eitthvað meinlaust sem við skiljum ekki og oft er það þannig að við erum hrædd við það sem við skiljum ekki en svo er fólk líka að lenda í hlutum sem gera meira en hræða það.
Ég er búinn að lesa greinar þar sem fólk er að lenda í því að slasast af óútskýranlegum ástæðum og mig langar rosalega að vita hvað þeir uppí sálarrannsóknarfélagi segja um það.
Einhver hefur lent í slíku má endilega tala við þá og posta svo á mig eða senda inn svar um hvað þeir segja.

Heimasíða sálarrannsóknarfélagsins: www.salarrannsoknarfelagid.is/
Heimilisfang: Garðastræti 8 - 101 Reykjavík
sími: 551 8130

Og eitt enn. EKKI fara í andaglas. Þið eruð algerlega óvarin gegn illum öndum í andaglasi.

Bestu kveðjur
Jolli