Það hefur löngum verið vitað að mannkyn og aðrar dýrategundir eru háðar svokallaðri þróun og framför er tryggð með því að tegundirnar verða alltaf hæfari og betri. Skv því sem að ég ætla að setja fram er að næsta stig í þróuninni sé andlegs eðlis og margir séu að vakna til þess þessa sannleika.
Sagt er að þetta komi til í gegnum svokallaðar innsýnir sem að eru 9 talsins og eru hluti af fornu handriti sem að fannst í Perú og inniheldur nýjann sannleika sem að meira að segja kenningar Albert Einsteins og skammtaeðlisfræðin styðja. Handrit þetta er viðfangsefni bókar sem að ég komst yfir nýverið og hvet ég alla til þess að lesa. Hún fær mann virkilega til að hugsa um þessi mál af mikilli alvöru. Bókin heitir ,, CELESTINE HANDRITIN´´
Stiklað er á stóru og er það eingöngu til að vekja áhuga á bókinni.

1. Innsýnin
Hér er fjallað um það að einstaklingurinn hefur í gegnum líf sitt orðið fyrir alls konar tilviljunum sem að flestir setja enga merkingu í. En það sem að gerist við þess innsýn er að fólk fer að taka meira mark á þessum tilviljunum og þær verða algengari og innsæið meira. Fólk fer að geta notað sér þessar tilviljanir eins og framlengingu á okkar skynfærum.

2. Innsýnin
Einstaklingarnir fara að skilja sögulegt samhengi alls sem að hefur gerst á jörðinni og í mannskynssögunni. Á miðöldum þá notuðum við ýmindunaraflið til að fylla upp í það sem við vissum ekkert um. Svo komu prestarnir og konungarnir og sögðu okkur hvað væri satt og rétt þegar að heimsmynd miðalda hrundi. Núna hafa prestar, klerkar og stjórnmálamenn misst trúverðugleika sinn og það mun gerast í auknum mæli í framtíðinni. Þeir eru mannlegir eins og við. Þessu fylgir tómarúm og eirðarleysi sem að við þurfum að fylla upp í með einhverju.

3.Innsýnin
Orkusvið verða sýnileg í kringum hluti og lífverur þegar að við einbeitum okkur á að skoða fegurðina í þeim. Við getum sest niður og séð þessi svið ef að við viljum og finnum að það að sjá þessi svið er nátengd tilfinningunni um fegurð. Finnum líka að mismunandi staðir hafa mismunandi áhrif á þennann hátt.

4.Innsýnin
Við sjáum að alheimurinn er samansettur úr gríðarlegri orku og að ástæðan fyrir öllum deilum og vanlíðann er sú að við erum ekki í tengingu við þessa orku heldur erum við að rífast um orkuna frá hvoru öðru.

5.Innsýnin
Alheimurinn lætur okkur í té allt sem við þurfum ef við opnum okkur fyrir því.

6.Innsýnin
Við horfumst í augu við hvernig við stjórnum öðrum og hættum að vera háð öðru fólki. Við fyllum okkur sjálf orku og þurfum þess vegna ekki að taka hana frá öðrum.

7.Innsýnin
Við verðum vakandi fyrir svari frá alheiminum. Við berum saman sögu lífs okkar við sögu drauma okkar þannig sjáum við samsvörun og skiljum draumana. Hugsanir og dagdraumar verða sem leiðarvísar.

8.Innsýnin
Við notum orku á nýjann hátt í tengslum við fólk. Við byrjum á tengslum við börnin og tæmum þau ekki orku með því að vera sífellt að leiðrétta þau og veitum þeim skilyrðislausann kærleik.

9.Innsýnin
Heilir hópar fólks sem að hafa lyft sveiflutíðni sinni á hærra stig verða skyndilega ósýnilegir öðru fólki með lægri sveiflutíðni. Við verðum nær heimkynnum okkar handann landamæranna.

PS Hvað finnst ykkur???