The Lesser Banishing Ritual of the Pentagram(LBRP) Þetta er athöfn til hreinsunar, bæði fyrir sjálfan sig og umhverfi sitt og má einnig gera á astralsviðinu. Hún jarðtengir líka og er sérstaklega öflug sem vörn gegn neikvæðum öflum.

Nöfnin sem eru tónuð eru á hebresku.


THE LESSER BANISHING RITUAL OF THE PENTAGRAM

1. Stattu á móti austri og framkvæmdu The Quabalistic Cross (http://www.hugi.is/dulspeki/greinar.php?grein_id=57512 ).

2. Stígðu fram með vinstri fæti, táknrænt fyrir „entering within".

3. Notaðu fingur (þumalputta stungið á milli vísifingur og löngutangar), rýting eða reykelsi og teiknaðu „banishing pentagram“ í loftið fyrir framan þig.

Byrjaðu við vinstri mjöðm og teiknaðu logandi, bláa línu (sumir vilja hafa hana rauða og má ráða því) að punkti rétt fyrir ofan höfuðið á þér o.s.frv. (sjá mynd). Sjáðu fyrir þér logandi, blátt pentagram fyrir framan þig.

4. Stingdu fingrinum/rýtingnum/reykelsinu í gegnum miðjuna á pentagraminu og tónaðu hið guðlega nafn IHVH (framburður: Joð hey vó hey).

Gerðu þetta hægt og vel (sjá grein http://www.hugi.is/dulspeki/greinar.php?grein_id=57516 um hvernig á að tóna rétt). Haltu fingrinum í miðjunni. Finndu og sjáðu fyrir þér pentagramið stækka og springa með miklum bláum hita og orku, gleypa þig, áru þína og allt umhverfis þig í austur.

Sjáðu pentagramið halda áfram að stækka, hita þess og eld brenna burt allt óhreint og hreinsa allan austurfjórðung heimsins. Síðan heldur hann kyrru fyrir í austri, brennur sterkur og stöðugur með hreinleika og stöðugleika.

5. Ennþá með handlegginn teygðan út, færðu þig hægt í suður (fjórðung úr hring til hægri).

Um leið og þú færir þig sjáðu fyrir þér strauma f eldbaug frá pentagraminu að punkti í suðri. Sjáðu þetta sem byrjun á verndandi vegg eða eldhring. Þegar hringurinn er fullkomnaður mun hann innsigla þig inni í hring hreinleikans og loka úti allt neikvætt.

6. Gerðu annað eins pentagram í suðri, stingdu fingrinum í gegn og segðu: ADNI (framburður: Adonaí).

Pentagram þetta gerir alveg eins og hitt nema í suðurátt og nú hefurðu tvö logandi pentagröm.

7. Gerðu alveg eins og áður og færðu þig í vestur, gerðu annað pentagram og segðu: AHIH (framburður: ejejej).

Nú hefurðu gert þriðja pentagramið og tengjast þau öll með eldbaug.

8. Gerðu eins og áður og dragðu eldbauginn í norður, gerðu fjórða pentagramið og segðu: AGLA (framburður: aaaglllaaaa).

Þetta er ekki heilagt nafn eins og hin orðin, heldur stytting á Ateh Gedulah le-Olam Adonai, sem þýðir „Þú ert mikill/voldugur að eilífu, ó guð.“

9. Dragðu eldbauginn áfram í austur og lokaðu hringnum.

Þetta er verndandi eldhringur með logandi pentagrömum í allar áttir. ÞEgar þú fullkomnar hringinn fer í gegnum þig og umhverfis þig sprenging af hreinsandi eldi sem hreinsar enn betur og verndar umhverfið.

10. Láttu hendur falla, snúðu í austur og andaðu djúpt að þér þessu hreina lofti. Sjáðu allt hreint og verndað. Lyftu höndunum upp til hliðanna, lófana upp og segðu: Fyrir framan mig, Rafael! (þú tónar Rafael og einnig nöfn hinna englanna).

Sjáðu ljóssúlu úr bláu og gylltu myndast fyrir framan þig og úr henni stígur máttug vera. Þú finnur svalan gust sem endurlífgar áruna þína. Þetta er snerting við mikla heilun og vernd. Þessi vera kinkar kolli til þín og snýr síðan frá þér til að vernda þig fyrir hvers kyns átroðningi á þitt svæði - til að standa vörð um austur fyrir þig.

11. Enn með handleggina útrétta tónaðu orðin: Fyrir aftan mig, Gabríel!

Sjáðu fyrir þér græna ljóssúlu myndast fyrir aftan þig. Úr henni stígur máttug vera (með ljósgeislum). Hún er rafmögnuð í eðli sínu og þú finnur það. Gabríel er rafhlaða alheimsins og frá honum koma öll grunnatriði hugsýna. Veran kinkar til þín kolli og snýr svo baki í þig til að standa vörð um vestur.

12. Með handleggina enn útrétta tónaðu orðin: Mér á hægri hönd, Mikael!

Sjáðu myndast hægra megin við þig kristalrauða súlu sem lýsir í litum eldsins. Úr henni stígur mögnuð vera með sverðið útrétt. ÞEssi mikli erkiengill sér um og hreinsa þá krafta náttúrunnar sem eru í ójafnvægi. Þessi vera kinkar kolli til þín og snýr sér svo við til að standa vörð um suður fyrir þig.

13. Tónaðu nú orðin: Mér á vinstri hönd, Úríel!

Sjáðu kristalhvíta súlu myndast og úr henni stígur risastór vera sem hefur forsögulegt, guðlegt ljós og vinnur við að gera því skil á jörðu. Hún vinnur með ljós allrar kennslu. Hún kinkar til þín kolli og snýr síðan í norður til að standa vörð um það fyrir þig.

14. Sjáðu fyrir þér alla erkienglana umhverfis þig í þessum eldhring. Finndu mátt þeirra, orku, vernd og blessun. Segðu síðan eftirfarandi hægt og skýrt: Umhverfis mig ljómar pentagramið og í súlunni skín sex-geislastjarnan!

Hér er talað um súluna sem þú ert og skapaðir i The Quabalistic Cross. Sjáðu sex-geislastjörnuna fyrir þér skína í hjarta þínu (Í O.T.O. er hún fyrir ofan höfuðið) og perntagrömin loga í kringum þig

15. Sjáðu fyrir þér og upplifðu (finndu fyrir) alla senuna. Gerðu svo aftur Quabalistic Cross. Það innsiglar verndarhringinn.


Vona að þið hafið eitthvað gagn af þessu. Þetta virkar a.m.k. frábærlega vel fyrir mig!

Kveðja,
Divaa