Nú seinustu ár lífs míns hafa verið skrítin eða ekki beint eðlileg varðandi
ja, nokkra hluti.

1) Ekki löngu síðan (1-2ár) byrjaði ég að fá á tilfinningunni að eitthvað vont
myndi gerast við eitthvað sérstakt, stuttu síðar gerist það. Ég ætla ekki að
ljúga en það var 11.september. Ég get ekki útskýrt hvernig ég fékk þessa
tilfinningu en eitthvað benti til þess að eitthvað hræðilegt væri nálægt.
2) Nýlega dreymdi mér að sprenging væri í flugvél og kom stór rifa á hana
og sogaðist fólkið úr því. Hvað stóð í morgunblaðinu daginn eftir. Það
sama.
3) Þetta gerist ekki alltaf en oftast svona 1 sinni á 2 vikum fæ ég eitthvað
vont á tilfinningunni.
4) Nú á fimmtudaginn var ég á leiðinni í vinnuna (sumarvinna á Hrafnistu)
og ég svaf yfir mig, þegar ég var að fara í vinnuna sá ég köttinn minn út í
runna að veiða fugl. Sem tók aðrar 15 min. Svo leiðinni á hjólinu mínu var
næstum klesst á mig. Svo fóru gírarnir af hjólinu mínu. Ég fékk strax á
tilfinningunni að eitthvað væri að hindra mig hérna. Svo í vinnunni bilar
traktorinn. Þegar morgunmatur var fór ég inn á stofu þar sem það er
sjónvarp. Í gangi var Addams family. Ekkert nema masokismi náttúrulega.
Svo eftir það fór ég á flæmóverinn sem er slátturvélin sem maður dregur
eftir grasinu. Ég var að fara upp bratta hlíð og á blautu grasi. Ég renn og
fóturinn minn lendir í slátturvélinni. Ég missti næstum því 3 tær. Á
fimmtudaginn 12.júní 2003. En ég var heppinn en það vantaði aðeins
2cm að ég hefði aldrei ganga rétt aftur. Enginn veruleg skemmd var. Það
er allt í lagi með mig. En það skildi eftir sig stóra ör. 16 spor. Ég hef farið
oftar á spítala en nokkur annar á Íslandi. Með ekkert nema ör á mér. Éina
7 spora á hökunni og fl. Ég fæddist 2 mánuðum fyrir tímann og átti 5%
líkur að lifa það af. Ég fór í massívar skurðaaðgerðir 4ra ára, tók við
einhverskonar donation af Paul Newman 1991. eyrnabólga 1995.
Botlangaaðgerð 2000. Og endalaust spítalakjaftæði. En hvað meinar
þetta er ég að verða skyggn? Gerist þetta við aðra? Ég hlakka til að lesa
svörin.