Sæl öllsömul,



Nú er komið að því að halda næsta námsskeið í grunnatriðum Wicca. Nánari upplýsingar eru hér http://www.wicca.is

Þeir sem voru þegar búnir að skrá sig eru beðnir um að staðfesta skráninguna fyrir miðvikudaginn 11 júní með svarpósti.

Vinsamlegast sendið póstinn áfram á þá aðila sem þið haldið að hefðu áhuga.

Rétt er að nefna að ég hef í huga að halda samskonar námskeið á Akureyri bráðlega og væri gaman að heyra í þeim sem vilja skrá sig þar.

Á döfinni eru einnig námskeið í orkustjórnun, og vörn gegn andlegum ásóknum.

Ég opin fyrir uppástungum varðandi fyrirlestra, þemanámskeið og slíkt.




Mætumst sæl og skiljum sæl og mætumst sæl á ný,

)O( Snæugla )O(


Kynningarnámskeið
í grunnatriðum Wicca

Farið verður í öll helstu grunnatriði fyrir byrjendur og áhugasama. Meðal þess sem fjallað verður um:

Helsta speki og uppruni Wicca
Guðinn og Gyðjan
Frumöflin og höfuðáttirnar
Jurtir, olíur, reykelsi, kertagaldur
Uppbygging athafna
Hvað eru galdrar, hvað eru galdrar ekki
Einfaldir kertagaldrar
Verkfærin - athame, sproti, jurtir, pentacle, bikar ofl.
Hátíðisdagar og árshjólið
Ræktun sjálfsins
Tegundir innvígslu
Sveimir/einstaklingsiðkun/hópar
Andleg verndun
Framhald
Og margt, margt fleirra

Nánari upplýsingar eru á http://www.wicca.is
Skráning í wicca@wicca.is