Blessaðir hugarar ég er búin að vera að lesa greinarnar hér og mig langar að koma með smá reynslu.

Ég hef alla tíð verið mjög næmur, það næmur að oft veit ég hvað fólk er að hugsa, einnig segir líkamstjáning gífulega mikið.
Alla tíð hef ég fundið fyrir eins og það sé verið að fylgjast með og oft dettur mér í hug “hið alsjáandi auga”. Allt fólk er með anda í brjóstinu þar finnur maður sársauka og gleði.
Ef t.d. maður sér fréttir af hörmulegum bílslysum þá fær maður sting fyrir brjóstið og líka ef manni berast frábærar fréttir, jafnvel ástfanginn þá springur eitthvað út í brjóstinu.

Þegar stóri jarðskjálftinn var 2000 fékk ég fyrirboða um hann 2 tímum fyrr, einnig ýmislegt annað. Nú árið 2003 hefur eitthvað mikið verið á seyði, í upphafi árs fann ég að eitthvað væri að fara að gerast í heiminum, mér hefur aldrey liðið eins og núna ég er allur rosalega skrýtinn, finnst eins og margt sé orðið óraunverulegt og er farinn að sjá einhverjar illar verur um allt.

Hvað er með árið 2003?. Ég veit ekki en það er eitthvað mikið, það er eins og heimurinn (fólkið) hafi stokkið tugi ára framm í tímann í illsku.

Getur verið að “Guð” sé búin að fá nóg af illsku mannana og sé að leyfa “Satan” að tortíma okkur.

A.T.H. er ekki ofsatrúarmaður.