Hæ hæ
Mig dreymdi fyrir stuttu að ég stæði fyrir framan spegil og var að varalita mig með rauðum varalit, og ekki bara varirnar heldur yfir alla hökuna og ég var að vanda mig ógurlega við að filgja línunni meðfram kjálkabeinunu og hökunni eða hvað það nú heitir. Svo þega kom að því að varalita efri vörina vissi ég ekki hvernig ég átti að fara að því.

Mér fannst þetta svo skrítinn draumur því að ég mála mig yfirleitt aldrei og set aldrei ámig varalit.

Getur einhver ráðið þetta??
Takk fyrir mig
kveðja Poca