Sæl verið þið.
Fyrir nokkru var ég með smá svona upphitunar partý heima hjá mér(í húsi foreldra minna)bara nokkrar vinkonur saman komnar.Við sátum bara og vorum að spjalla,hlusta á tónlist og drekka,þegar við sáum eins konar gráa þoku eða ský fara framhjá okkur.Beint við hliðina á borðinu sem við sátum við(það var líka eins og það hafi snert okkur,minnir mig),meira að segja ein í hópnum sem trúir ekki á neitt sá það líka og brá rosalega meira en við hinar.
Þetta hef ég séð nokkuð oft,einu sinni sá ég tvö svona ský á hreyfingu annað var svona grátt og hitt var hvít(það er rosalega erfitt að útskýra hvernig þetta er eina sem ég get sagt er það var eins og ský eða þoka).
Svo víst ég er að segja ykkur frá þessu þá var annað skipti sem ég og vinkona mín vorum að hlusta á tónlist frekar hátt(ég var ein heima,foreldrar mínir voru í sveitinni hjá ömmu og afa þannig að ég hafði fært dýnuna úr rúminu mínu og vekjaraklukkuna niður í stofu svo ég þyrfti ekki að fara upp á aðra hæð til að sofa á
hverju kvöldi.Auðveldara að komast út ef það skildi kveikna í eða eitthvað annað myndi ske á meðan ég var ein heima),það var eins og einhverjum hafi ekki líkað að við skildum hlusta svona hátt á tónlistina því að allt í einu kastaðist vekjaraklukkan í græjurnar og það fast að sá sem gerði það hefur örugglega verið reiður,við eins og asnar vissum ekkert hvað við áttum að gera,ég lækkaði í græjunum og svo fórum við bara inn í eldhús og sáttum við vorum ekki hræddar frekar hissa.vekjaraklukkan var svona ca. 3 metra frá græjunum.Svo var líka annað skipti.Þá var ég ný kominn inn að allt í einu byrjuðu að heyrast hljóð frá dýnunni eins og einhver var og hoppa ofan á dýnunni(til að stríða mér)þetta var gormadýna,þá brá mér frekar mikið ég fór fljótt út aftur fór á vídeóleigu´,leigði mér spólu og fór svo heim aftur,ég heyrði ekki meiri hopp þetta kvöld eða annað kvöld.Ég er farinn að sakna soldið þess að heyra ekki né sjá þessa hluti sem ég sá,við erum flutt úr húsinu sem þetta gæti hafa fylgt.
EF einhver veit hvað þetta var endilega segðu mér það eða ef einhver hefur lent í svipuðu.Ég held að þetta hafi ekki verið neinar ofsjónir hjá mér því ég var ekki ein um að heyra að sjá þessa hluti,en hver má náttúrulega hafa sýnar skoðanir annars er ekkert gaman að þessu,en endilega.Ef þetta var eitthvað spennandi sem var í gangi þarna látið mig vita. :)