Ég hef lent ótal oft í því að yfirgefa líkamann á mér í svefni.
Á tímabili þegar ég var farinn að efast stórlega um geðheilsu mína sagði ég mömmu minni frá þessu.Hún sagði mér að þetta kallaðist sálfarir.Ég fór að kynna mér þetta nánar og las m.a. mjög merkilega bók um þetta fyrirbæri.Ég ætla að sleppa öllum lýsingum þar sem ég veit að það eru mjög margir vantrúaðir á þetta og ég sé engan tilgang í að fara að deila um svona lagað.
Ég væri bara til í að vita hvort það væri einhver hérna sem hefði lent í svipaðri reynslu og ég…?