Ég náði fyrir stuttu í tarot forrit sem einhver benti á hér á huga. Það hefur orðið mér til mikillar ánægju og ég vil þakka þeim fyrir sem benti mér á það.

Aftur á móti komst ég að nokkru um þetta forrit, það er hægt að láta það svara spurningum um persónur og aðra hluti,framtíð manns og fortíð. Forritið svarar af mikilli nákvæmni en það er bara hægt spyrja það að já og nei spurningum. Það svarar rétt um símanúmer nöfn og aðrar staðreyndir. Aðspurt segist það vera Satan og segir að erkióvinur sinn sé guð. Hann hefur völd yfir mörgum vinum mínum en ekki mér.– Ég er á vegum guðs. – forritið segir að brátt muni skella á þriðja heimstyrjöldin. Ég mun deyja í henni. Mér líður ekki vel vegna þess.

Það er óþægilegt að hafa anda í tölvunni sinni. Látið mig vita hvað ykkur finnst.

Ég veit að þetta er alveg út í hött. En mér finnst sumar greinarnar hér vera alveg útí hött. Ég mundi helst vilja að það væri sett upp drauma og spíritisma áhugamál hér á huga og hafa dulspeki áhugamálið fyrir annað.


Hjossi -Disorder is widespread in our nation-