Í nótt dreymdi mig frekar fáránlegan draum, þessi fær 7.5 af 10 á draumafáránleikaskala Zedlics…

Draumurinn byrjaði á því að ég var í New York vegna þess að það átti að “endurgera” hryðjuverkaárásina 11. september (don't ask me why).
Ég var í turninum sem var flogið á seinna og var frekar ofarlega í honum.
Þegar upp var komið sá ég flugvél nálgast í fjarska, fljúga milli turnanna, snúa við á staðnum á mjög furðulegan hátt og fljúga síðan á hinn turninn. Þegar þetta gerðist varð ég mjög hræddur og fékk mikla “jæja-nú-er-ég-alveg-að-fara-að-deyja”, tilfinningu sem allir ættu að kannast við úr draumum, enda fór turninn sem ég var í að svigna mikið og sveiflast til hliðanna.
Nú varð ég “panic-stricken”, hljóp í risastóra lyftu og ætlaði að drífa mig niður. Lyftan var alveg ótrúlega lengi á leiðinni og ætlaði aldrei að fara af stað.
Þegar niður var komið hljóp ég í burtu og fór inní einhverskonar íþróttahús þar sem ég keppti í mjög skrýtinni tegund af Amerískum fótbolta við vélmenni. Þegar leiknum var lokið og ég ætlaði að fara út skammaði húsvörðurinn mig fyrir að skrá mig ekki áður en ég kom inn.

Eftir þessa skemmtilegu uppákomu kom ég á einhverskonar torg þar sem mikið af fólki hafði safnast saman til að fylgjast með seinni flugvélinni klessa á turn númer 2. Turninn virtist í ca. 3 kílómetra fjarlægð og sást vel frá þeim stað sem ég stóð á.
Stuttu seinna sást flugvélin fljúga að turninum og klessa á hann. Þegar þetta gerðist fóru steinar og allskonar drasl úr turninum að fljúga yfir okkur, samt fór ekkert í mig. Þrír múrsteinar sem ég hafði á einhvern furðulegan hátt séð í turninum frá torginu áður en flugvélin fór á hann lentu rétt hjá mér og lenti einn í fanginu á systur minni sem var allt í einu komin þangað. Hún komst að því að inní í steininum var gsm-sími sem ég skoðaði síðan og fann ýmsar myndir af flugvélum í honum. Þannig komst ég að þeirri niðurstöðu að þessi sími hlyti að hafa verið í eigu eins flugræningjanna. Seinna, eftir að ég vaknaði, fattaði ég að það meikaði náttúrulega ekki mikið sens þar sem síminn var inní múrstein sem var í WTC turninum… en það er ekki eins og eitthvað hafi verið að meika sens í þessum draum.

Um þetta leyti vaknaði ég og mundi alveg ótrúlega vel eftir þessu öllu, hélt reyndar eins og svo oft áður að þetta hefði gerst í smástund þangað til ég fattaði að þetta var draumur.

Zedlic