Samtímis því að grundvöllur var lagður að náttúruvísindum nútímans, var fjöldi manna í Evrópu brenndur á báli fyrir galdur og þjónustu við djöfulinn. Galdrafárið hófst um 1480 og stóð fram yfir 1700, og var mest um það í Norður Evrópu. Ekki var lengur gerður greinarmunur á svartagaldri (sem var vondur) og hvítagaldri (sem var góður), hvort heldur sem þú stundaðir eða trúðir á var það talið villutrú og hafði í för með sér dauðarefsingu.

Ástæðan fyrir öllu þessu ófsóknaræði var sú að lútherstrúarmenn héldu að guð væri reiður útí þá vegna hversu lengi þeir hefðu vaðið í villi páfatrúarinnar og kaþólskir menn héldu að guð væri reiður yfir trúavillu lúterstrúarmanna. Reiði guðs birtist víst á ýmsan hátt til dæmis í furðulegum teikningum á lofti, halastjörnum og öðrum furðuhlutum sem sýndu greinilega hversu bálreiður hann var…

Djöfullinn var heldur ekkert alltof kátur yfir því að hafa mist svona mikið af þegnum og hann hefndi sín með því að láta drepsóttir og annan viðbjóð ganga yfir mannkynið.

Eitthvað þurfti mennirnir að gera og tóku þjóðhöfðingjar og kirkjunnar menn höndum saman í baráttunni, allt sem talið var koma djöflinum að gagni var bannað t.d. blót og bölv.

Djöfullinn og hans árar voru andlegar verur þó gátu þeir samt gert sig sýnilega en gátu aldrei framkvæmt neitt líkamlegt, þess vegna þurfti þeir að fá í liðs með sér galdrakonur og menn. Fólkið semsagt seldi djöflinum sálu sína og fékk í staðinn vald sem það átti helst að nota í illum tilgangi.

Fólki fannst auðvitað nauðsynlegt að koma upp um eins margt galdrafólk og hægt var, leyfilegt var að nota pyndingar og reyndar mælt með því. Pyndingar flýttu fyrir játningum og uppljóstrunum um aðra sem stunduðu galdra. Eftir játninguna var fólki bara freygt á bál og látið brenna til dauða. Við yfirheyrslur kom í ljós að djöfullinn hélt galdramessur á ákveðnum stöðum. Þangað komu galdramenn og konur ríðandi á kústsköftunum sínum og var svo stundað mikið svall og saurlífi að skipun djöfulsins.

Galdrafólki fjölgaði mjög eftir því sem hert var á ofsóknunum.

Mikil fólksfjölgun var í Evrópu og í kjölfari þess bjó fólk mjög nábýlt og þar af leiðandi mikið um nágrannaerjur sem endaði oftar en ekki með því að annar ásakaði hinn um galdur. Djöfullinn fór setti engin skilyrði um að maður þyrfti að vera fáttækt eða kvennkyns en oftar en ekki var það málið.

Til Íslands bárust áhrifin frá Danmörku og Þýskalandi, en það voru í rauninni enginn læti hér fyrr en um miðja 17.öld þegar galdraofsóknir í Evrópu voru að líða undir lok. Galdrafárið varð aldrei neitt mikið mál hérna á íslandi enda galdramálin mjög fá, ástæðan er kannski sú að fólk á íslandi bjó frekar einangrað og hafði ekki mikil samskipti við nágranna sína.
Málin sem komu upp voru aðalega bara um meðferð galdrastafa og rúnablaða sem áttu að hafa valdið skaða, ofast á búfénaði og stundum fólki. Það var ekkert um pyndingar né galdramessur á íslandi og djöfullinn kom lítið við sögu.

Galdrafárið á íslandi byrjaði með því að maður í Eyjafirðir var brenndur fyrir að magna sendingu árið 1625. Sú brenna virðist hafa verið einangrað tilfelli því að hin næsta fór ekki fram fyrr en um miðja öldina. Flestar brennurnar áttu sér stað á árunum 1669 – 1683, þó að galdramál kæmu upp allt fram að 1720, síðasta brennan átti sér stað 1685.

Á íslandi tengdust galdramálin mikið þremur embættismönnum. Þorleifur Kortsson lögmaður á þingeyrum lét taka þrjá menn af lífi í Trékyllisvík á Ströndum árið 1654. Séra Páll Björnsson í Selárdal fékk með aðstoð Þorleifs fimm menn brennda vegna þess að hann taldi það þeim að kenna að konan hans var veik. Séra Jón Magnússon á Eyri við Skutulsfjörð fékk, einnig með hjálp Þorleifs, feðga brennda þar sem hann taldi þá hafa ofsótt sig með göldrum.

Ein íslensk galdrabók (17.öld) hefur varðveist og er handritið geymt í Svíþjóð! Bókin er eftir fjóra ókunna höfunda. Í galdrabókinni er 47 galdrar til góðs og ills, hún er ekki þjóðsaga eða tilbúningur seinni tíma, heldur er hún safn galdratækja, raunveruleiki sem fólk hætti lífi sínu fyrir. Hér má sjá galdra eins og þeir voru verstir, dauðagaldur sem lýsir hryllingi og öfgum, ofbeldishvöt sem brotist hefur út böndum, en svo er líka mikið um galdra sem leysa eiga vandamál daglegst lífs, reynt er að verjast sjúkdómum, slysum, illum vættum og óvinum. Í bókinni flékkast saman hefðir úr norrænni heiðni, kaþólskri kristni og kabbalískri dulspeki.