Ég var að velta fyrir mér stöðum borgarinnar og fór ég mjög mikið að velta fyrir mér tilvist staðar sem kallast Diabló. Fer einhver þangað? Þeir auglýsa sig sem eina teknóstað bæjarins og eru þá greinilega að reyna að vera einhverskonar thomsen. En hvað segið þið, er eitthvað varið í þennan stað? Ég hef komið einu eða tvisvar sinnum inn á pleisið reyndar á fimmtudagskvöldi (menntaskólabjórkvöld) og þá var tilboð á barnum 2fyrir1 og það vantaði glös!!!!!! auk þess var leiðinleg tónlist þarna alls ekki einhver teknó tónlist! hvað segið þið, getur einhver bætt ímynd mína á þessum stað?!