Hvað er betra en að vakna á sunnudegi eins og það hafi einhver grýtt stein í andlitið á þér og svo fengið grýlukerti í gegnum heilann? Ég er amk það þunnur akkúrat núna með sver tvö glóðuraugu.

Byrjaði djúsið hjá félaga mínum nálægt miðbænum í gær, allt í góðu og menn í góðum gír, flestir þarna með landann góða og eitthvað bland, sumir með bjór, aðrir reykjandi gras og sumir sturtandi í nösina á sér. Eg var orðinn virkilega blekaður kl svona 11 og eilítið víraður, tónlistin blastandi og allt að verða vitlaust! Og menn streyma niðrí bæ um 1 leitið, við ákváðum að rölta og mætum nokkrum hörðum töppum á vegi okkar.. einn þeirra axlar besta vin minn og ég reiðist við það mjög, tek hann og skalla gaurinn í andlitið og hann dettur niður, kemur feitur vinur hans og hrindir mér í jörðina og lætur högginn dynja á mér! Eg fann ekki fyrir þessu því ég var svo fokkin víraður og blekaður á sama tíma..Svo kemur vinur minn og rífur þann feita af mér og byrjar að berja hann og sparka í andlitið á honum og ég tek þátt og blóð út um allt svo fæ ég flösku á 100km hraða í andlitið og vankast og dett í jörðina (hefði getað farið mikið verr, botna ekkert í þessu).. ég man ekki mikið meir eftir þetta, fórum á óliver og dönsuðum grimma takta langt fram eftir rauðri haustnótinni víraðir, með glóðuraugu og blóðugar skyrtur!

Hvað er betra en að taka gott djús niðrí miðbæ borg syndanna og lenda í fight? Þetta er allavega lífið í mínum augum!

Bætt við 19. september 2010 - 16:38
En verst þó að vakna svona skítþunnur og þurfa að mæta í vinnuna á morgun svona nett skemmdur í andlitinu