Hæhæ. Ég er 21 árs, útskrifaðist úr MR í fyrra. Eftir að ég útskrifaðist hef ég verið pínu einmana og ekki alveg vitað með hverjum ég á að hanga, hvað þá djamma. Engin skólaböll lengur og svoleiðis ;) Þess vegna var ég að hugsa hvort einhver væri í svipuðum sporum, langaði að djamma en vildi kannski ekki fara einn niðrí bæ um helgar hehe. Þannig já, kannski spurning hvort einhverjir hugarar hefðu áhuga á að fara með mér niðríbæ og detta aðeins í það? Jafnvel næstu helgi?

P.S. ekki vera feimin, bít ekki ;)