jæja er eitthver byrjaður/byrjuð að plana djammferðir til útlanda næsta sumar. það er nú kreppa svo maður þarf að byrja snemma, ég var rétt í þessu augnabliki að komast að því að ég væri á leiðinni í hróarskeldu í sumar með bróður mínum og vinum hans, annaðhvort ætla ég með þeim eða gista hjá félögum mínum þarna í grennd, eftir þessa yndislegu helgi verður haldið með lest til svíþjóðar þar sem við munum hitta systur okkar og vera þar í viku (ekkert djamm) eftir það verður tekin lest til Hollands til hina systur okkar og verið þar í viku (djammað í laum) eftir það förum við í sumarhúsið á spáni og þá verður tekið meira nett djamm, ég er í heljarinnar gleðivímu :) 8)

Bætt við 11. janúar 2009 - 01:58
vonandi mun enMy drattast frá þýskalandi og hitta mig í dk!
Fyrrum GrammarCop einnig Mentosman