F.U.B.A.R. (Fucked Up Beyond Any Recognition)

Hérna er brillíant drykkjuleikur sem ég fann á netinu fyrir nokkru síðan. Auðvitað verður að nota frekar sterkt vín eins og vodka og svo líka bjór í kónginn.

Stokkið spilastokk og setjið hann á mitt borðið. Einn leikmaður má draga eitt spil í einu.
Snúið spilinu við og sýnið öllum spilið. Hvert spil hefur reglur sem eru:

Ás - Drekktu einn sopa.
2 - Drekktu svo sopa.
3 - Drekktu þrjá sopa.
4 - Spurning: Þú lítur á þann sem þér sýnist, hann/hún verður að svara spurningunni með spurningu og þannig heldur það áfram þangað til einhver klikkar. Dæmi: Hvað er að ske? Afhverju snertirðu þig? Þú þarft ekki að spyrja manneskjuna sem spurði þig. Vertu bara ögugg/ur að ná augnasambandi.
5 - Gefðu fimm sopa.
6 - Ég hef aldrei. Hér segir sá sem dró spilið eitthvað sem hann/hún hefur ekki gert en sá/sú sem hefur gert það verður að drekka tvo sopa.
7- Puttar: Sá sem degur spilið setur einn putta á borðið og sá sem er síðastur að setja putta á borðið verður að drekka einn sopa. Sá sem dróg má gera þetta eins oft og hann vill þangað til næsta 7 kemur.
8 - Sá sem er sjáanlega minnst fullur verður að drekka 3 sopa.
9 - Rím: Allir verða að koma með orð sem rímar við þitt. Dæmi: Gull…sull…bull..o.s.frv.
10 - Sameiginlegt: Allir drekka einn sopa.
Gosi - Asna drykkur…Strákar drekka.
Drotting - tíkardrykkur…Stelpur drekka.
Kóngur - Vatnsfall: Þetta getur verið mjög erfitt, það fer eftir drykkjufélögum. Sá sem dregur spilið drekkur eins og hann getur af bjór og sá sem er á eftir honum verður að drekka eins lengi og nr.1, þriðji verður að drekka eins lengi og nr.2, og þannig gengur það áfram. Ef sá fyrsti er mikill drykkjumaður getur þetta verið mjög erfitt fyrir hina!!!
Svo er hægt að semja um einhverja refsingu fyrir þann sem tapar =)
Enginn er verri, þó hann sé smá perri