langaði deila með ykkur einu mesta drama kvöldi sem ég hef lent í á ævi minni, við vorum 4 gaurar á lani“sveitt” og vorum að drekka, einn var edrú, vorum bara sveittir í tölvunni svona sirka til miðnættis þá fórum við á rúntinn, vorum btw á mjög öflugum og góðum bíl. Allavega við byrjum á að skutla pabba vinar míns og félaga hans eitthvað í Reykjavík og vorum við þá með einn yfirfarðega, og á leiðinni í RVK þá hittum við annan svona sportbíl og sá sem var að keyra fer að sýna sig eitthvað og gefur alveeeg mjög vel í og já við erum stoppaðir af löggunni og hann er tekinn á 151 á 80 götu og misssir prófið sitt, sem betur fer tók löggann ekki eftir því að við vorum 4 afturí því þa hefði sektinn orðið enþá hærri. Hah og já löggan sem stoppaði okkur bað strákinn um að hringja í pabba sinn og láta hann vita af þessu, og pabbi hans var afturí hjá okkur mjög fullur sjálfur :D frekar kjanalegt.
Eftir þetta skutlum við pabba og vini hans niðrí bæ eitthvað og byrjum bara að rúnta, en þá hringjir vinur sá sem á bílinn og byður um að láta sækja sig og kærusta hennar og við gerum það, erum aftur komin með yfirfarðega.
Erum bara eitthvað að rúnta og tala saman, og þá byrjar fíflið sem við pickuðum upp að segja að gaurinn sem á bílinn sem lélegur driver og eitthvað þannig og er að reyna æsa hann, hann var btw að drekka sem átti bílinn.
Svo fer sá sem á bílinn og gerir eitthvað í velinni styllir hana eitthvað og biður svo um að keyra :s og já hann fékk það (algjer vitleysingur sá sem var að keyra að leyfa honum það), fullur undir stýri alveg verulega í því við 4 afturí enginn í belti og á mjög öflugum bíl, Hann byrjar að gefa í eins og mother fucker og vissssi ekkkkkert hvað hann var að gera hafði enga stjórn á bílnum, fór í eitthvað hringtorg og náði réttsvo að komast úr því gaf svo meira í og við fórum heilan hringgg og lentum með skottið fyrst aftan á ljósastaur, sem betur fer slasaðist enginn alvarlega, en ég skallaði einhverja stelpu sem var afturí og fékk feitann hausverk.
Við vorum líka í mikklu panici þegar þetta var að gerast(hélt ég væri að fara deyja) og þegar bíllinn stoppaði þá ætlaði hann bara að fara gefa í aftur :s ég öskraði eitthvað á hann og hann hætti þá við.
Við vorum þarna í eitthvað korter bara í panicci eftir þetta og meta skemmdirnar og eitthvað síðan keyrðum við heim og það var algjeeeeeer þögn í bílnum á leiðinni heim :p
Ef að við hefðum farið með húddið framan á ljósastaurinn hefði þetta öruglega farið allt öðruvísi og einhver hefði öruglega slasast meira.
ÞETTA ER KANNSKI FREKAR ILLA SKRIFAÐ HJÁ MÉR EN WHO GIVES.
Þetta var allavega mesta dramakvöld sem ég hef lent í á ævi minni.