Ég er sem sagt 17 ára strákur og frekk eiginlega ekki, hef einu sinni orðið alveg ágætlega fullur, drakk heila kippu af Smirnoff Ice um síðustu Verslunarmannahelgi bara með tveimur vinum mínum í útileigu. En það sem ég er að pæla, ég hef stundum heyrt það að Breezer og Smirrnoff Ice og þess háttar drykkir séu einhverjir “kerlinga bjórar”. Ég hef reynt að pína ofan í mig heilum bjór en það bara tekst ekki, því mér finnst venjulegur bjór ekkert góður en Smirnoff Ice geðveikur.

Er eitthvað til þessu þar sem ég er hræddur um að vera eitthvað rakkaður niður fyrir að vera ekki nógu “karlmannlegur og drekka alvöru bjór” eða eitthvað álíka? Ég vil bara vera eins og ég er.

Bætt við 13. október 2007 - 00:49
“og frekk eiginlega ekki,” á að vera “drekk eiginlega ekki,”