Þetta er nú ekki alveg djamm, en það var fjör og læti.

Jamm, Fyndnasti maður íslands er á margra manna vörum þessa dagana og það vill svo til að frændi minn keppir í þessari keppni. Ég, fjölskyldan, vinur minn og frændfólk fórum í Austurbæ í gær því þá var verið að taka einn þáttinn upp, sem verður síndur í næstu viku að ég held. Það voru 4 keppendur.( það eru fjögur kvöld og 4 í einu) OG við sprungum úr hlátri! Sá seinasti var reyndar lélegur en hinir voru allir geðveikt fyndnir, svo var Steinn ármann kynnir og var að kynda upp á milli þáttakanda, og Gilsinager og FRETvindur komu á svið. En þetta var stuð, eini gallinn var sá að eina konan í keppninni var þetta kvöld, og þegar mæla átti desíbelin þá voru bara stelpur á 1 bekk ( við vorum á 2) og píkuskrækirnir komu henni í 2 sætið, Halldór Ingi frændi í 3 sæti og svo var þessi lélegi í seinasta sæti. En ég man ekki hvað þessi í 1 sæti heitir. auk þess myndi ég spoila öllu með því að segja það þó svo að ég hafi sagt frá hinum,lol. Samt var Halldór fyndastur með Traust :P Og það vantaði ekki kynlífsbrandarana þarna á sviðinu, allavega, þetta var snilld, svo sjáið þið þetta í sjónvarpinu.