Sæl verið þið

Nú er ég í klípu.
Ég hef ekki djammað almennilega í mörg ár. Ég er að tala um síðan ég var 16 ára með skilríki frá 24 ára vinkonu minni frá Montana. Sem fór svo í burtu með skilríkin sín.

Núna er ég 19 ára. Með mín eigin réttu skilríki, og er á leiðinni á djammið með annari 19 ára snót sem einnig hefur ekki djammað almennilega í mörg ár.

Hvert á maður að fara? Eru einhverjir staðir með 18 inn? Eru einhverjir dyraverðir einstaklega easy? :p