Ég var bara að íhuga hvað er djamm raunverulega. Ég er nú ekki mikill “djammari” enda er ég í 10 bekk en þar sem ég er að fara í menntaskóla á næsta ári þá langaði mig til þess að vita hvað er djamm raunverulega.

Ef maður ætlar að djamma verður maður að vera á rassgatinu og vakna heima hjá einhverjum sem maður þekkir ekkert og muna ekkert eftir gærkvöldinu. Getur það talist djamm að vera heima með vinum sínum og gera ekkert sérstakt?

Bara smá hugleiðingar hjá einum sem fer hugsanlega að skella sér útí þennan heim djammsins.

Kveðja axel86