Hverjir hafa lent í leiðinlegum dyravörðum?

Ég lenti í einum í gær. Maður þurfti að vera með svona dót á hendinni til að komast inn og ég spurði hvort ég mætti stökka út og hringja í félaga minn, leiðbeina honum á staðinn. Dyravörðurinn segir að það sé lítið mál og hleypir mér út, svo þegar félagi minn er kominn ætlum við að labba inn og þá segir hann við mig “Þú kemur ekki aftur inn” ég spyr afhverj, þá segir hann “Þú fórst út, þá kemur ekki aftur inn.” þá segi ég “Já en ég mátti fara út að hringja..” ooog þá segir Mr. Miss ass monkey jerk “Jájá, þú máttir alveg fara út og hringi, en máttir ekkert koma aftur inn”.

Svo fór einhvað fólk að rífast í honum og þegar það spurði “afhverju bannaru honum að koma inn” þá svaraði hann alltaf með sama aumingjarkommentinu “afþví ég ræð..”.

Vei, þú ert svona well up on your 30's og ert dyravörður, success in life. (er nú samt ekki að dissa dyraverði, bara þennan einstakling.)

Og notaben, ég var ekki búinn að fá mér 1 sopa af áfengi.