Jæja, Vill ég hér segja frá voða “skemmtilegu” atviki sem átti sér stað, í fyrra eða hitt í fyrra.

En svona var mál með vextum, Við vorum 4 í bílnum á leið til einhverja af þessum dögum sem eru haldnir á snæfellsnesi.
Man ekki allveg hvaða dagur það var sem var í gangi, en koma aðeins held ég bara 3 til greyna.
Hvað með það, byrjaði þetta ferðalag allveg helvíti vel.

Vorum með fullt skott af bjór og smá vodka hér og þar.
Áttum lítið pláss í bílnum fyrir tjöldin okkar, og allt sem tilheyrir, því aðal áheyrslan var að drekka sig nogu andskoti fullann og skemmta sér.

Jæja, við vorum komnir jahh, yfir helminginn af leiðinni þegar lögga nokkur stoppar okkur.
Vildi kallinn þá leita í bílnum okkar út af einhverjum ástæðum.
Var hann með hund og allar græjur, svo þetta hljómaði fyrst svona gegt spooky.
Opnaði löggann skottið og fór þá allt til fjandans.

Löggan heimtaði að taka áfengið af okkur (fyrst enginn var lögráða) og vildi hún ekkert trúa á söguna um að “Pabbi vinar okkar” átti þetta. (Sem hann átti að hluta til samt sem áður).
Varð þetta algjör bömmer.

Lögðum við samt af stað með tómann bílinn eiginlega, og vonuðumst til að redda okkur áfenginu aftur þarna niðurfrá, með hjálp pabba félaga míns, því þar sem hann var að missa sitt áfengi líka.

Ekki leið á löngu en einhver fáviti reynir að drepa okkur )BÓKSTAFLEGA).
Gáfum við þá bara í og stungum hann af. Loks komumst við á áfangastað, og byrjaði djammið ekki vél. Hafði þá þessi þöngulhaus sem reyndi að drepa okkur, kært okkur.

Eftir að hafa stusserast hjá löggunni, bæði með “tilvonandi kæru” á okkur (fyrir hvað, skil ég ekki allveg) og reynt að ná áfenginu aftur, sem mistókst :S
fórum við að reyna að tjalda, því við höfðum nægann pening til að skella okkur bara í ríkið daginn eftir.
Nýr dagur kom, og vöknuðum við allir snemma til að drattast í þetta ríki, en nehh viti menn.
Var ekki lokað yfir alla helvítis hátíðina.
Svo við enduðum eflaust einu 4 unglingarnir sem enduðum edrú alla helvítis helgina.

:S var HUNDLEIÐINLEG helgi

Bætt við 30. nóvember 2006 - 18:58
Hummz, Gæsalappirnar ekki að virka.
Titillinn átti að vera “Mitt ”skemmtilega“ utidjamm”