Til að gera langa sögu stutta þá var ég á fyllerí heima hjá vini mínum. ég var að drekka vodka var með líters flösku. var búinn með smá af henni, fannst ég ekkert vera fullur þannig að mér dettur það snilldar ráð að þamba restina af flöskunni. það næsta sem ég man er þegar að ég vakna um morguninn ekki í neinum bol og ligg á stafla af handklæðum.

þá var það þannig að ég var búinn að borða pasta um kvöldið og ákveð að detta í það eins og kom fram hér áður. en þegar að ég er búinn með flöskuna þá fer ég í blackout og byrja að æla út um allt. það var þrifið á það ráð er ég drapst að klippa utan afmér bolinn þar sem að ekki var hægt að koma mér öðruvísi úr honum. ég látinn í dead bed og þau þrífa alllt. ég vakna um morguninn sitja tvö frammi og hlægja að manni er maður kemur fram ég skil ekkert í því og fer heim, mamma alveg snargeðveik er ég kom heim um morguninn þar sem hún hafði ekki heyrt neitt af manni í smá tíma.

p.s. aldrei eta spagettí fyrir fyllerí… þetta kom út í lengjum hjá manni víst.