núna ætla ég að vera fyrst að deila með án efa því fyndnasta sem ég hef lennt í á djamminu!! Ég var í Danmörku að heimsækja vinkonu mína sem búsett er þar, við ákváðum að byrja fyrsta kvöldið á smá djammi, og við drukkum svolítið skart og eftir sitthvora kippuna og nokkur skot þá var tímabært að fara heim, við þurftum að taka rútu heim um nóttina og vinkona mín segir við mig að hún megi alls ekki sofna því þá mun hún æla, og ég ákveð að passa uppá að hún verði með rænu allann tímann en ég var svo upptekin að horfa út og skoða umhverfið og lýt á hana og þá er hún sofnuð og vaknar og segir svo “ég þarf að æla” og ég er ekki lengi að koma mér úr sætinu og fer í næsta sæti, kíki í veskið mitt og ath hvort eitthvað sé þarna sem grey stelpan gæti ælt í svo hún þurfi ekki að æla á úlpuna sína. Ég var með pennaveski því eyelinerinn minn opnast alltfa í veskinu og brotnar oddurinn og eitthvað, þannig ég setti allt make-upið í pennaveski því ekkert annað fannst ;Þ ég tók það allt úr og lét vinkonu mína fá pennaveskið og þarna sat hún ælandi í pennaveskið og ég er ekki frá því að það hafi allt bara runnið af mér í hlátrinum!!!
Ofurhugi og ofurmamma