Ég hringdi og tjékkaði á þessu.
Þetta er vandamál út af of miklum hávaða. Þrátt fyrir að búnaði hafi verið komið fyrir til að laga það vildi lögreglan ekki breyta umsögn sinni um staðinn. Þetta er í áfrýjun og þá kemst þetta í lag. Vonandi í þessari viku. Síðan stendur víst til að höfða mál gegn borginni og fara fram á skaðabætur…
Thomsen hefur aldrei fengið áminningar fyrir ungt fólk eða annað en hávaða. Þeir sem eru undir tvítugt og hafa reynt að komast þarna inn vita það best sjálfir.
Við verðum bara öll að muna eftir þessu í maí þegar kosið verður til borgarstjórnar…