Jæja, þá er það komið á hreint. Maður er á leiðinni til Tyrklands með nokkrum félögum þann 06.06.06 á hótel sem heitir Turban Palace hjá Marmaris. Þetta verður bara geðveiki og mæli ég með fyrir alla að skella sér þarna út því það verður allt vitlaust!!

Ég var eithvað búinn að heyra það að einhver framhaldsskóli væri að fara þarna á sama stað viku fyrir okkur. Veit bara ekkert hvaða skóli það er.

Ef einhver ætlar að koma með einhver fuglaflensu comment þá veit ég að það er eithvað í gangi þarna en er búinn að athuga málið betur og það er ekkert að óttast, nema ef maður hafi skipulagt að baða sig uppúr dauðum kjúklingum.

En auðvitað ef þetta versnar til muna þá mun maður endurskoða þetta, ásamt því að úrval útsýn, sem við munum ferðast með í þetta skipti, munu vara okkur við samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisstofnunar.

Ég þakka