PARTY @ AKUREYRI
Danstónlistarhátið 11-12. nóvember @ Café Amour.

Maðurinn með skærin og grúvið, DJ Rikki er búinn að smala saman rótsvölu plötusnúðagengi og blása til danstónlistarhátíðar á Akureyri helgina 11-12. nóvember.

Það er nánast sama hvert þú ferð; í miðvikudagschill á Kaffibarnum, á klúbbakvöld á NASA, í skuggalega ágúst eftirpartýið eða rave út í Hvalfirði. Það góður séns á að þú sjáir einhverja af þessum snúðum tæta staðinn upp!

Það er ekki oft sem dagskráin er svona þétt, þannig að Akureyringar, Dalvíkingar, fólk frá Sauðárkróki og bara allir, látið sjá ykkur.

Við byrjum á miðnætti, rukkum ekkert inn og klúbburinn er opinn til klukkan fjögur!