jæja, hálf villtist hingað inná, en eníhú! af hverju er ekki svona korkur fyrir djammsögur og þannig lagað! ég meina hver lumar ekki á góðri djammsögu. ég hitti nú vinkonur mínar oftast daginn eftir og við ræðum hvað gerðist daginn áður, og það er alltaf gaman og áhugavert.
það væri bara soldið patent verð ég nú að segja.

ég hélt nefnilega að það væri eitthvað í þá áttina sem ég nefndi áðan, en þetta voru eigilega bara tilkynningar um hugsanlegt djamm, sem er allt gott og blessað, en það er náttlega líka hluti af djamminu að segja öðrum frá hvað maður var að gera skemmtilegt;)

svo var líka svona ótrúlega stór og glæsileg auglýsing sem var akkúratt að biðja um meira líf hér þannig það er bara mjög patent að byrja með svona kork:D