Það er þannig að ég átti kærustu fyrir svolitlu síðan, en ég var ekkert að fíla hana og dömpaði henni. Hún hefur aldrei komist yfir það og sendir alltaf vinkonur sínar til að tala við mig og spurja “afhverju” eða eitthvað þannig.
Núna ætlar hún að hafa partý heima hjá sér á Laugardaginn og spurði mig hvort ég vildi koma………ég svaraði fyrst svona “tja…ég veit ekki sko.” og þá sagði hún: Þú mátt taka eins marga vini og þú vilt með. Þá hugsaði ég að ég get tekið eins og 10 - 15 vini með til þess að vernda mig frá henni áður en hún reynir eitthvað og vinir mínir eru mjög til í þetta vegna þess að við höfum ekki farið í partý í 2 eða 3 vikur núna. Ég spyr samt einfaldlega….ætti ég að fara þangað því að þessi stelpa er sko góð í að gabba mann og ég get sagt að þegar ég er kominn með nokra áfengisdropa í munnin geri ég næstum hvað sem er.
Ætti ég???

Kv. StingerS