já ég fór á djammið um helgina hér á akureyri,sem var alveg ágætt,nema ég var alveg að sofna á einum staðnum,og sem betur fer var farið á hressari stað og við dönsuðum alla nóttina og ég hef komist að því að útlenskir karlmenn geta verið mjög uppáþrengjandi,allavega áttum við mjög erfitt að losna við 2 svoleiðis ég og hún vinkona mín. En svo var djammið búið og tími til að fara út í vonda veðrið og fara heim að sofa og þá versnar í því, það er svo leiðinlegt að þurfa að fara heim til sín í kalt rúm og þar sem ég hef engan sætan strák sem hitar upp rúmið fyrir mig þá þurfti ég að sofa alein….ég er nefnilega skotin í strák en hann er ekki skotinn í mér og það er alltaf erfitt að hugsa um að fá ekki að kúra hjá honum meir…..