Ef þið hafið prófað að djamma í öðru landi en hér þá skiljið þið hvað ég er að fara með þetta.
Hér eru eintómir asnar sem drekka sig blindfulla, fara niður í bæ og heimta slagsmál. Ég er ekki að segja að allir séu svona mikil kjánaprik, en það er ótrúlega mikið af þessu.
Seinustu helgi var ég niðrí bæ að reyna að skemmta mér, sá ég þá tvo drukkna Íslendinga abbast upp á útlenskt par sem var í sama fíling og ég, bara að skemmta sér. Jú…viti menn okkar menn réðust á túristana sem vissu ekkert um Íslenska hegðun. Þetta endaði með því að ég og vinur minn óðum í þessa gaura og hentum þeim í burtu. Það kom síðan í ljós að þeir réðust á þetta par því þau voru að spyrja til vegar….hvað er að gerast í þjóðfélaginu í dag. Lærið að fullorðnast !!!!