Ég var staddur fyrir utan ákveðna verslun í Reykjavík áðan, sat inni í bíl og var að telja klink sem ég ætlaði að versla fyrir og hlustaði á góða mússík á meðan… en anyways, meðan ég var að telja renndi upp í stæðið við hliðina á mér bíll og úr mílu fjarlægð gat maður heyrt vælið í hljómsveitinni Aqua þar sem allir gluggar voru opnir og græjurnar í botni og þegar bíllinn stoppaði stukku út úr aftursætinu tvær mestu gelgjur sem ég hef nokkurn tímann séð, ábyggilega ekki eldri en 14 ára! (samt var komið fram yfir útivistartímann!!) !! Þær byrjuðu að dansa við Aqua á bílastæðinu og syngja með og stuttu síðar kom út bílstjóramegin einhver algjör FM Hnakki!!..
Þegar inn í búðina var komið voru þær komnar inn og voru að syngja í búðinni svo að bergmálaði um allt og á kassanum var haldin einhver gelgjulegur fyrirlestur og shit!! ég nenni ekki að skrifa meira um þetta fólk!!
en djöfull vorkenni ég gaurnum (þrátt fyrir það að vera FM Hnakki) sem að hefur ekki meiri sjálfsvirðingu en það að láta bjóða sér að vera að rúnta með svona hyski!!!
gelgjulætin voru það mikil að ég man ekki eftir öðru eins síðan í 7. eða kanski 8. bekk…<br><br>Mullet er ekki bara hárgreiðsla, það er lífsstíll!! :)
http://easy.go.is/demonbrotherz
mammaín!!