Elektrolux # 12 @ Gaukurinn_ Sander Kleinenberg
Hollensk súperstjarna

Elekrolux er núna fara í stutt vetrarfrí til að safna orku fyrir ærslagang sumarsins. En áður en að því kemur, nánar tiltekið þann 17. janúar næstkomandi, verður haldinn miðvetrar-hátíð ElektroLux. Stjarna kvöldisns er Sander Kleinenberg en hann ætti að vera flestum klúbbagestum vel kunnugur enda ekki að koma hingað í fyrsta sinn, en hann spilaði á rómuðu ElekroLux kvöldi seinasta sumar.

Kleinenberg er kemur frá Haag sem er ekki aðeins aðsetur stjórnsýslu Hollands heldur líka óformlegar höfuðstöðvar danstónlistar-framleiðslu landsins. Þar er sándið naumhyggið, kröftugt, kúl og sexý

Sander var aðeins 15 ára, 1987, þegar hann fann fyrstu ást lífs síns; plötusnúninganna. Áður enn á löngu leið var hann orðinn einn aðalskífuþeytir Niðurlandanna og var m.a. orðinn “resident” Dj á ROXY í Amsterdam, staður sem skipar svipaðan sess í hugum íbúa A'dam og Rósenberg/Tunglið gerir í hugum okkar sem búum í 101 Reykjavík. Upp úr því hóf hann að leggja land undir fót og núna í dag hefir hann spilað á flestum mikilvægum og merkilegum skemmtistöðum á hnettinum, sem dæmi má taka Rex í París, Space á Ibiza og Cream í Liverpool.

Hann er samt ekki bara þekktur sem plötusnúður heldur líka sem pródúser. Fyrir utan DJ mix geislaplötur fyrir Global Underground og fleiri, hefur hann gefið út tónlist hjá nokkrum plötufyrirtækjum beggja vegna Atlantshafsins, og er eitt af lögum hans “My Lexicon” sennilega eitt mestaselda og langlífasta klúbbalag seinni ára!

Ómissandi hús-búggí veisla, sett saman af DJ úr heimliðinu!
Miðverð er 1500 kr. og húsið opnar klukkan 23:30. Grétar G. hitar upp.


ElektroLux




—-nokkur skemmtileg quote um Sander —-

”My Lexicon er með öllu ógleymanlegt lag og hann spilaði á besta Elektrolux kvöldi ársins 2002.” – Frímann Andrésson, plötusnúður, Íslandi.

“Ég var á leið inn á Sander Kleinenberg-gig í Bratislava 1998, með einn
aukamiða í vasanum og ákvað að gefa sætustu stelpunni í röðinni hann. Við
hlustuðum saman á hann og dag erum við gift.” - Goran Divac, sölumaður,
Slóveníu.

“Not only is Sander one of the fastest rising talents on the DJ circuit,
he`s also a fantastic producer and a brilliant drinking partner.” – Sasha

“Hann er alveg ágætur, þrátt fyrir að ég vilji helst bara hlusta á sjálfan
mig eða bestu vini mína spila…” - Alfons X, DJ, Ísland/Sviss